Skýrslutaka hjá lögreglu (Börn)

Lögregla talar við þig til að komast að því hvað hefur gerst.

Manneska situr við skrifborð með tölvuskjá fyrir framan sig og slær inn á lyklaborð. Fyrir framan skrifborðið situr önnur manneskja á stól. Sú manneskja er með áhyggjusvip og heldur vinstri hendi að hjartastað.

Hvað er skýrslutaka?

  • Skýrslutaka er þegar þú lýsir því sem gerðist fyrir lögreglunni.
  • Skýrslutakan fer fram í sérstöku herbergi á lögreglustöð. Í einstaka tilvikum er viðtalið í Barnahúsi.

Undirbúningur

Réttargæslumaðurinn þinn undirbýr þig fyrir skýrslutökuna og á hverju þú mátt eiga von. Það er best að hafa réttargæslumanninn og barnaverndarfulltrúa með í skýrslutökunni sjálfri. Ef þið eigið eftir að finna réttargæslumann er hægt að fá lista yfir lögmenn hjá lögreglunni.

Meira um skýrslutökuna:

  • Viðtalið er tekið upp, bæði hljóð og mynd.
  • Í herberginu eru þú, rannsakandi hjá lögreglunni, réttargæslumaðurinn þinn og manneskja frá barnavernd. Ef þú þarft túlk er hann líka viðstaddur.
  • Ef þú áttar þig seinna á að þú hefðir getað sagt frá fleiru í skýrslutökunni geturðu haft samband við réttargæslumanninn og beðið um að bæta við skýrsluna. Rannsakandinn gæti þá kallað þig aftur inn í viðtal svo að viðbótarupplýsingarnar séu líka til á upptöku.
  • Skýrslutaka þarf ekki sjálfkrafa að þýða að brotið verði kært.

Þú mátt hafa með þér punkta, glósubók til skrifa í eða tilbúinn texta.

Gott að vita

  • Áður en þú ferð í skýrslutöku fer réttargæslumaðurinn yfir með þér hvernig skýrslutakan gengur fyrir sig og hvað þarf að hafa með.
  • Það getur hjálpað að hafa sagt upphátt frá atburðinum áður en þú mætir í skýrslutökuna. Þetta getur gert það auðveldara að segja skýrt frá. Þú getur gert þetta í einrúmi, með einhverjum sem þú treystir eða með réttargæslumanni.
  • Þú mátt hafa með þér punkta, glósubók til skrifa í eða tilbúinn texta.
  • Þú mátt biðja um annan rannsakanda til að taka skýrslu ef þú vilt ekki tala við þann sem tekur á móti þér.
  • Ekki fela áfengisneyslu eða notkun vímuefna. Það breytir engu um stöðu þína en getur aðstoðað við rannsókn málsins.
  • Eftir skýrslutöku er eðlilegt að finna fyrir mikilli þreytu eða tómleika svo það er ekki ráðlagt að fara beint í skóla, vinnu eða að sinna daglegum verkefnum. Gott er að gefa sér tíma til að jafna sig.
  • Það er mikilvægt að lýsa atburðum eins skýrt og hægt er. Ekki hika við að nota nákvæm orð, jafnvel þó þau séu erfið eða viðkvæm. Rannsakendur eru vanir því að heyra um flóknar og erfiðar aðstæður sem tengjast heimilisofbeldi.

Óvænt atriði

Það er ýmislegt sem gæti komið þér á óvart í skýrslutökunni. Hér eru dæmi:

  • Skýrslutakan getur virkað kuldaleg. Ástæðan er að þau sem rannsaka málið verða að vera hlutlaus. Þeirra markmið er samt að fá sem mestar upplýsingar um hvað gerðist þannig að reyndu að láta það ekki trufla þig.
  • Rannsakandinn þarf að spyrja margra óþægilegra spurninga, eins og um mjög persónulega og viðkvæma reynslu.
  • Rannsakandinn sem tekur viðtalið er ekki í lögreglubúningi heldur í sínum eigin fötum.

Hvað tekur þetta langan tíma?

Skýrslutakan tekur yfirleitt um klukkutíma. Stundum tekur hún lengri tíma svo gott er að gera ráð fyrir því.

Hvað gerist næst?

Nú tekur við bið á meðan lögregla rannsakar málið. Það er lítið sem þú getur gert annað en að huga vel að þinni uppbyggingu og öryggi.

Aftur í skýrslutöku

Á meðan rannsóknin er í gangi gæti lögregla kallað þig inn í aðra skýrslutöku til að varpa ljósi á eitthvað sem komið hefur upp í rannsókninni eða biðja þig um einhver gögn. Þá hefur lögreglan samband við þinn réttargæslumann sem aðstoðar þig að svara.

Munur á börnum og fullorðnum

Tvær leiðar manneskjur sitja hlið við hlið. Two sad young people sitting next to each other.