Skýrslutaka í Barnahúsi

Skýrslutaka er viðtal þar sem þú lýsir því sem gerðist.

Um Barnahús

Ef það er haldið að einhver hafi beitt þig ofbeldi er talað við þig í Barnahúsi til að komast að sannleikanum. Þetta er kallað skýrslutaka. 15 ára og eldri fara á lögreglustöð í skýrslutöku. Það er barnavernd eða lögreglan sem óska eftir að það sé tekin skýrslutaka af þér, ekki fjölskyldan þín.

Barnahús er í Reykjavík og á Akureyri.

Skýrslutakan

Að fara í Barnahús er ekkert eins og að fara á lögreglustöð. Barnahús lítur bara út eins og venjulegt hús. Þú getur farið í skýrslutöku í Reykjavík og á Akureyri, eftir því hvort er nær heimili þínu.

Hvaða spurningar eru?

Spurningarnar í viðtalinu eru einfaldar og skýrar. Það er passað upp á að þær fái þig ekki til að hugsa um eitthvað sem gerðist ekki. Þú getur treyst manneskjunni sem spyr því hún er sérþjálfuð í að spyrja spurninga sem er búið að sanna að séu bestar í svona viðtölum.

Það er talað svipað við öll börn, en alltaf miðað við aldur. Til dæmis eru stundum notaðar teikningar fyrir yngri börn. Ef þú ert með einhverja greiningu lætur barnavernd Barnahús vita. Það er til að þér líði sem best í viðtalinu.

Sá sem spyr

Í viðtalinu ert bara þú og manneskja frá Barnahúsi sem er sérfræðingur í að taka svona viðtöl. Sérfræðingurinn má ekki gera neitt annað í viðtalinu en það sem hann á að gera. Það eru strangar reglur um það. Sá sem talar við þig vill bara komast að því sem gerðist.

Viðtalið er tekið upp

Þú þarft ekki að mæta í dómsal og segja frá þar. Í staðinn er viðtalið við þig tekið upp og síðan spilað í dómsalnum.

Aðstandendur

Fullorðna manneskjan sem er með þér er í öðru herbergi á meðan þú ert í viðtalinu. Hún horfir ekki á það né hlustar.

Hverjir fylgjast með?

Af því að viðtalið er tekið upp og notað sem vitnisburður þinn um brotið þurfa ákveðnir aðilar að vera á staðnum líka. Þetta fólk er í öðru herbergi á meðan þú ert í viðtalinu og fylgist með.

Dómari

Dómari þarf að vera á staðnum. Hann getur talað við manneskjuna sem er að spyrja þig í gegnum heyrnartól. Hann gerir það bara ef það er eitthvað meira sem hann vill vita um brotið.

Aðrir

Svo eru aðrir líka í sama herbergi og dómarinn en þau horfa bara á viðtalið.

  • Réttargæslumaður. Réttargæslumaður er lögmaðurinn þinn sem ríkið útvegar þér og fjölskyldu þinni (sem eru þolendur).
  • Rannsakandi frá lögreglunni.
  • Starfsmaður frá barnavernd.
  • Verjandi gerandans.

Tímalengd

Það er mismunandi hversu lengi börn eru í skýrslutöku. Það getur tekið 10 mínútur eða 2 klukkustundir. Stundum þarf tvær skýrslutökur.

Eftir viðtalið

Þegar viðtalið er búið máttu fara í meðferðarviðtöl. Það eru annars konar viðtöl en eru líka í Barnahúsi. Ef þú býrð langt frá höfuðborgarsvæðinu eða Akureyri kemur manneskja heim til þín til að taka viðtalið. Þá byrjar þú að fá það sem er kallað áfallamiðuð meðferð. Það er til að hjálpa þér að líða betur. Fólk sem verður fyrir kynferðisofbeldi verður oft fyrir áfalli og líður illa.

Ef þú ert ekki með einkenni áfalls getur þú farið til sálfræðings sem þú og aðstandendur þínir velja. Fullorðið fólk sem þú treystir fylgir þér í gegnum meðferðina svo þér geti liðið betur.

Læknisskoðun

Það er hægt að fá lækni til að skoða sig í Barnahúsi. Stundum finnst börnum sem hafa orðið fyrir einhverju slæmu gott að fá að vita hjá lækninum að það sé allt í lagi með þau. Þá eru það barnalæknar, hjúkrunarfræðingar eða kvensjúkdómalæknar sem skoða þig.

Það er ekki leitað að sönnunargögnum í læknisskoðuninni til að nota fyrir dómi. Læknarnir hafa samt stundum sagt frá ákveðnum niðurstöðum úr skoðuninni fyrir dómi þegar það hefur þótt mikilvægt.

Þegar þú verður 15 ára

Stundum á brot sér stað þegar þolandi er 14 ára og svo líða 1-2 ár þangað til málið fer fyrir dóm. Þá hefurðu náð 15 ára aldri og þá þarftu að mæta í dómsalinn. Ef það gerist er fólk með þér til að hjálpa þér, eins og einhver sem þú þekkir frá barnavernd og réttargæslumaðurinn þinn.

Munur á börnum og fullorðnum

Tvær leiðar manneskjur sitja hlið við hlið. Two sad young people sitting next to each other.