Aðferðir þeirra sem stunda mansal
Tæling
Gerandinn er góður í að finna fólk sem er á einhvern hátt í viðkvæmri stöðu. Markmiðið er að ná stjórn á manneskju svo hægt sé að þvinga hana til að framkvæma eitthvað og hagnast á því.
Val á manneskju
Gerandinn velur sér einstakling sem er í viðkvæmri stöðu. Til dæmis einhvern sem er að leita sér að betra lífi annars staðar vegna fátæktar. Það gæti líka verið innflytjandi sem þekkir ekki hvaða lög og reglur gilda um atvinnu eða aðrar aðstæður í nýju landi og samþykkir því kannski hluti sem hann myndi ekki samþykkja annars.
Öðlast traust
Gerandinn passar að þolandinn fái allt sem hann þarf eftir fyrstu kynni. Til dæmis útvegað húsnæði, síma eða annað sem þolandi gæti þurft og myndar þannig traust.
Einangrun
Fyrstu sjáanlegu merki mansals er oft þegar gerandi einangrar þolandann, heldur honum frá fjölskyldu sinni og aðstæðum sem gætu upplýst þolandann um að sé verið að blekkja hann.
Hagnýting
Þolandinn er notaður í vinnu sem gerandinn græðir á, til dæmis með því að greiða lægri laun og hirða mismuninn sjálfur eða greiða engin laun og segja að laun þolandans fari upp í skuld fyrir ferðakostnað eða lækniskostnað eða annan kostnað sem gerandinn hefur útvegað þolandanum.
Viðhalda stjórn
Gerandinn hefur mikil völd, til dæmis með því að taka vegabréf og önnur skilríki og pappíra af þolandanum, hóta að beita hann eða fjölskyldu hans ofbeldi ef hann gerir ekki það sem honum er sagt. Oft er þolanda kynlífsmansals sagt að sala á vændi sé ólögleg á Íslandi og hótað að ef hann gerir ekki eins og honum er sagt, þá muni gerandinn tilkynna hann til lögreglunnar og honum verður refsað - en það er ekki satt.