Barnavernd

Markmið barnaverndar er að styðja foreldra til að hugsa vel um börnin sín. Ef þú heldur að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu ættirðu að láta barnavernd vita.

Glöð börn að hoppa út í sundlaug.

Barnavernd tryggir vernd og umönnun barna

Markmið barnaverndar er fyrst og fremst að koma börnum og fjölskyldum til aðstoðar. Öll undir 18 ára teljast börn, einnig ófædd börn. Barnaverndarlög segja að aðstoða eigi börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu. Ef þú heldur að barn sé beitt ofbeldi eða búi við vanrækslu ættirðu að tilkynna það til barnaverndar. Ekki treysta á að aðrir láti vita. Það er líka mikilvægt að tilkynna aftur ef ástandið breytist ekki.

Til dæmis ætti að tilkynna:

Barnavernd leggur áherslu á aðstoð í samvinnu við foreldra og börn. Það er gert með því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og vernda einstaka börn þegar það á við. Velferð barnsins er alltaf í forgangi. Börn eru höfð í samráði – eftir því sem aldur þeirra og þroski leyfir.

Hvernig á að tilkynna

Þú getur tilkynnt til barnaverndar með því að hafa samband við í 112 í síma eða gegnum netspjall. Þú getur líka haft beint samband við barnavernd í sveitarfélaginu þar sem barnið býr, mörg þeirra bjóða upp á tilkynningu gegnum vefinn. Þú þarft að segja til nafns þegar þú tilkynnir en getur alltaf óskað eftir nafnleynd gagnvart öðrum. Börn geta líka haft samband sjálf.

Tilkynna hjá barnavernd:

Það er allt í lagi að tilkynna þótt maður sé ekki alveg viss. Mundu að börn eiga alltaf að njóta vafans.

Losaðu þig við áhyggjurnar og komdu þeim í farveg. Tilkynntu mál sem varða börn til 112.

Reynslusaga Sóleyjar

Ofbeldi á heimilinu hefur alvarlegar afleiðingar fyrir börn þótt þau verði ekki fyrir ofbeldinu sjálf. Sóley er 13 ára stelpa sem ólst upp við ofbeldi af hendi pabba síns. Hún hefur nú flutt á annað heimili með mömmu sinni og bróður þar sem þau lifa nýju lífi í öryggi.

Áhrif ofbeldis á börn

Ofbeldi hefur neikvæð áhrif á börn. Ofbeldi gegn börnum getur verið alls konar. Ofbeldið getur beinst beint gegn barninu eða óbeint, eins og þegar barn verður vitni að ofbeldi á heimili sínu.

Meðferðaúrræði

Barnavernd og BOFS (barna- og fjölskyldustofa) bjóða upp á ýmis úrræði fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

Aðstoð í boði

Sjá alla aðstoð
Þrjár dökkhærðar stelpur sitja á grasi. Þær snúa baki í myndavélina og spjalla saman.

Barnaheill

Barnaheill býður upp á ráðgjöf um allt varðandi börn. Á vefsíðu Barnaheilla er hægt að benda á óviðeigandi hegðun gagnvart börnum á netinu.

1717

1717 er hjálparsími og netspjall Rauða Krossins ef þú vilt tala við einhvern. Það er opið allan sólarhringinn. Ekkert vandamál er of lítið eða of stórt.

Húsnæði Foreldrahúss í bláu húsunum í Skeifunni

Foreldrahús

Foreldrahús veitir börnum, unglingum og foreldrum ráðgjöf, meðal annars vegna áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga, áhættuhegðunar og hegðunarvanda. Foreldrasíminn 581 1799 er opinn allan sólarhringinn.

Lands­teymið

Landsteymið hjálpar öllum sem tengjast skólasamfélaginu, frá leikskóla til framhaldsskóla.

Ofbeldi gegn börnum

Öll börn eiga rétt á vernd gegn ofbeldi. Þetta er á ábyrgð fullorðinna að passa upp á. Góð samskipti og fræðsla er góð undirstaða til að fyrirbyggja ofbeldi og stoppa það eins fljótt og hægt er.