Hjá héraðssaksóknara
- Ef lögreglan sendir málið áfram til héraðssaksóknara er það skoðað aftur vel þar.
- Svo er ákveðið hvort einstaklingurinn sem braut á þér verði ákærður af héraðssaksóknara eða ekki.
- Ef hann er ákærður þarf hann að mæta fyrir dóminn og segja hvort hann sé sekur eða saklaus. Þetta er kallað fyrirtaka í héraðsdómi.
- Ef viðkomandi segist vera sekur, viðurkennir að hafa brotið á þér, kveður dómarinn upp hvaða refsingu viðkomandi á að fá.
- Ef einstaklingurinn sem braut á þér neitar því að hafa gert það, þá þarf að rétta í málinu.
- Þá fer fram aðalmeðferð í dómsal, sem er það sama og við köllum stundum réttarhöld. Þegar aðalmeðferð er lokið þá kveður dómari upp dóm og segir þá hvort það sé búið að sanna að viðkomandi sé sekur eða ekki. Ef það hefur ekki tekist að sanna það nógu vel er hann saklaus.
Um héraðssaksóknara og héraðsdóm
Réttarkerfinu er skipt í nokkur dómstig. Héraðssaksóknari er eitt dómstig, önnur eru til dæmis Hæstiréttur og Landsréttur.
Héraðssaksóknari er bara einn fyrir allt landið. Aðalmeðferð getur þó verið hvar á landinu sem er. Héraðsdómar eru á átta mismunandi svæðum. Yfirleitt er málið tekið fyrir þar sem gerandinn á heima.