Fjarskiptaþjónusta
Fjarskiptaþjónustu við skip á hafsvæðinu við og umhverfis landið er fjarstýrt frá Vaktstöð siglinga.
Neyðar- og öryggisþjónusta sjófarenda
Vaktstöð siglinga er ætlað að sjá um eftirtalin atriði sem varða neyð og öryggi sjófarenda á hafsvæðinu umhverfis Ísland.
- Vöktun og stjórnun neyðarfjarskipta skipa, þar með talið alþjóðlegar neyðarrásir.
- Innlendar neyðar- og vinnurásir, STK, Inmarsat og Cospas-Sarsat.
- Navtex þjónusta (vital, important og routine tilkynningar).
- Beiðni um læknisaðstoð (MEDICO).
- Útsending siglingaaðvarana, til dæmis um bilanir í vitakerfinu, reköld, farartálma og hafís.
- Vöktun skipa í kerfi tilkynningaskyldu (hand- og sjálfvirkri).
- Tengiliður við erlendar björgunarstöðvar.
Ef tilkynning berst ekki frá skipi á reglulegum tíma eða ef Vaktstöð siglinga berast upplýsingar sem gefa til kynna að þörf sé á eftirgrennslan, leit eða björgunarskips í íslenskri efnahagslögsögu eru nauðsynlegar ráðstafanir gerðar í samráði við alla sem geta veitt aðstoð.
Önnur þjónusta við sjófarendur
- Móttaka og miðlun upplýsinga um skip sem falla undir hafnarríkiseftirlit.
- Móttaka og miðlun tilkynninga og upplýsinga fyrir ýmsar stofnanir samkvæmt viðeigandi samningum.
- Miðlun upplýsinga um veiðar, skyndilokanir, lög, reglur, Navtex og svörun fyrirspurna.
- Þjónusta við lögreglu og önnur yfirvöld.